Jessica Clavering elst upp í skugganum af falli fjölskyldunnar; ættaróðalinu og lífsstílnum sem forfaðir hennar tapaði í hendur ókunnugra. En hún sér leið til að gifta sig til fjár með hinum auðuga Joss Madden. Joss er heltekinn af ópalnum Green Flash, sem er að finna í ástralskri námu og því þurfa hjónin að ferðast alla leið að eyðimörkum Ástralíu. Yfir ópalnum hvílir hins vegar bölvun og það er í Ástralíu sem Jessica þarf að horfast í augu við fortíð fjölskyldu sinnar. Og hvað með Joss? Var þetta skynsemisbrúðkaup? Eða var það kannski ást?

Victoria Holt er eitt höfundarnafna Eleanor Alice Burford Hibbert. Hún fæddist í Bretlandi árið 1906 og lést 1993 og ritaði um 200 sögulegar skáldsögur um ævina undir hinum og þessum höfundarnöfnum, allt eftir umfjöllunarefni sagnanna. Meðal annarra höfundarnafna hennar eru Jean Plaidy og Philippa Carr. Verk hennar hafa unnið til verðlauna, verið þýdd á fjölda tungumála og hafa selst í yfir 50 milljón eintökum um allan heim.

Formato
EPUB
Protezione
Watermark
Data di pubblicazione
20 ottobre 2023
Editore
Collezione
Numero di pagine
216
Lingua
Is
ePub ISBN
9788728037027
PDF ISBN
9788728038130
EPUB
EPUB accessibility

Funzionalità di accessibilità

  • Sommario navigabile
sottoscrivi

Chi siamo

A proposito di De Marque Lavori Contattaci Condizioni di utilizzo Politica sulla riservatezza Feedbooks.com is operated by the Diffusion Champlain SASU company