Í upphafi skyldi endinn skoða ... Nora Sinclair vekur aðdáun hvert sem hún fer, en voveiflegir atburðir umlykja hana. Karlmennirnir í lífi hennar fara sérstaklega illa út úr samneyti við Noru. En hvað er það þá sem laðar FBI-manninn John O'Hara að henni? Er það hin myrka fortíð hennar? Eða ómótstæðileg fegurð hennar? Hvað sem það er þarf John að hafa sig allan við til að flækjast ekki um of í vef Noru og leysa málið án þess að stofna sjálfum sér í hættu. James Patterson er bandarískur metsöluhöfundur fæddur árið 1947. Bækur hans hafa selst í hundruðum milljóna eintaka. Patterson hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir skrif sín og hafa bækur hans verið þýddar á fjölmörg tungumál. Patterson kýs að gefa aftur til samfélagsins með því að styrkja verkefni sem efla læsi í skólum víða um Bandaríkin. Howard Roughan er bandarískur rithöfundur. Hann hefur gefið út tvær skáldsögur einn síns liðs, en hefur einnig verið meðhöfundur nokkurra skáldsagna með James Patterson. Roughan er með bakgrunn í auglýsingabransanum og segir þá reynslu hafa haft mikið um rithæfileika sína að segja.

Formato
EPUB
Protección
Watermark
Fecha de publicación
30 de junio de 2023
Editor
Número de páginas
252
Idioma
Is
ePub ISBN
9788728541999
PDF ISBN
9788728542149
EPUB
EPUB accesibilidad

Funciones de accesibilidad

  • Tabla de contenidos navegable
suscribir

Sobre nosotros

Sobre De Marque Trabajos Contacta con nosotros Condiciones generales de utilización Política de privacidad Feedbooks.com is operated by the Diffusion Champlain SASU company