Í miðjum skógi í Cornwall á Englandi standa sex styttur úr steini. Sagan segir að sex jómfrúr úr klaustri í Cornwall rufu heit sín og var breytt í stein í refsiskyni. En sjöunda jómfrúin átti önnur örlög. Mörgum árum seinna er klaustrið orðið að höll St. Larston fjölskyldunnar og örlögin blikka aðra unga konu. Kerensa Carlee elst upp í fátækt rétt við St. Larnston höllina. Án annarra kvenkosta en mikils metnaðar og enn meiri fegurðar tekst henni að fá vinnu sem þerna í húsinu, en þar er reimt. Kerensa er hins vegar ástfangin af húsinu og er staðráðin í að verða húsfreyja þar. En örlögin eru með önnur áform. Þrátt fyrir metnaðinn flækist Kerensa inn í minningar og ráðgátur og tilvera hennar í Cornwall viktoríutímans vekur upp bæði brjálæði og gamla hefnigirni... Victoria Holt er eitt höfundarnafna Eleanor Alice Burford Hibbert. Hún fæddist í Bretlandi árið 1906 og lést 1993 og ritaði um 200 sögulegar skáldsögur um ævina undir hinum og þessum höfundarnöfnum, allt eftir umfjöllunarefni sagnanna. Meðal annarra höfundarnafna hennar eru Jean Plaidy og Philippa Carr. Verk hennar hafa unnið til verðlauna, verið þýdd á fjölda tungumála og hafa selst í yfir 50 milljón eintökum um allan heim.

Format
EPUB
Protection
Filigrane
Date de publication
16 décembre 2022
Éditeur
Collection
Nombre de pages
212
Langue
Is
ISBN EPUB
9788728037140
ISBN PDF
9788728038017
EPUB
Accessibilité du format EPUB

Fonctionnalités d'accessibilité

  • Table des matières navigable
s'abonner

À propos de nous

À propos de De Marque Emplois Nous contacter Conditions générales d'utilisation Politique de confidentialité Feedbooks.com est opéré par la société Diffusion Champlain SASU