Nora Tamsin er sjálfstæð og viljasterk ung kona. En eins og aðrar ungar, ógiftar konur á viktoríutímanum í Englandi er hún fjárhagslega háð föður sínum. Þegar faðir hennar deyr tekur viðskiptafélagi hans við forræði Noru. Charles Herrick er gjarnan kallaður "gaupan" vegna þess hve sérstætt augnaráð hans er, en Nora lærir fljótt að nafnið á vel við hann á fleiri en einn hátt. Ásamt syni Charles, Stirling, ferðast þau til Ástralíu í leit að gulli, eins og svo margir aðrir á þessum tíma. En Nora áttar sig á að Charles er heltekinn hefndarþrá og er með áform um að taka yfir hinn svokallaða "hvíta kastala" heima á Englandi. Til að bæta gráu ofan á svart verður Nora ástfangin. En hvor Herrick-feðganna á hjarta hennar? Og hversu langt er Charles Herrick tilbúinn að ganga til að ná fram hefndum? Victoria Holt er eitt höfundarnafna Eleanor Alice Burford Hibbert. Hún fæddist í Bretlandi árið 1906 og lést 1993 og ritaði um 200 sögulegar skáldsögur um ævina undir hinum og þessum höfundarnöfnum, allt eftir umfjöllunarefni sagnanna. Meðal annarra höfundarnafna hennar eru Jean Plaidy og Philippa Carr. Verk hennar hafa unnið til verðlauna, verið þýdd á fjölda tungumála og hafa selst í yfir 50 milljón eintökum um allan heim.

Formato
EPUB
Protezione
Watermark
Data di pubblicazione
22 luglio 2022
Editore
Collezione
Numero di pagine
208
Lingua
Is
ePub ISBN
9788728037164
PDF ISBN
9788728037997
EPUB
EPUB accessibility

Funzionalità di accessibilità

  • Sommario navigabile
sottoscrivi

Chi siamo

A proposito di De Marque Lavori Contattaci Condizioni di utilizzo Politica sulla riservatezza Feedbooks.com is operated by the Diffusion Champlain SASU company