Hin sautján ára Pippa uppgötvar nokkuð skelfilegt. Systir hennar, Francine, sem lést nokkrum árum áður, var í raun myrt. Hún fannst á veiðisetri í furstadæminu Bruxenstein ásamt baróninum manni sínum, en barn þeirra var hvergi að finna. Pippa ferðast til Bruxenstein til að komast að því hvernig – og hvers vegna – systir hennar var myrt og hvað varð um barn Francine. Tilraun hennar til að komast að sannleikanum um dauða systur sinnar færir hana mitt í valdabaráttu um furstadæmið og hún mætir pólitískum öflum sem veigra sér ekki við að myrða fyrir völd. Mitt í þessu hrífandi en hræðilega landi hittir Pippa þó einnig ástina og yfirþyrmandi ástríðu. Victoria Holt er eitt höfundarnafna Eleanor Alice Burford Hibbert. Hún fæddist í Bretlandi árið 1906 og lést 1993 og ritaði um 200 sögulegar skáldsögur um ævina undir hinum og þessum höfundarnöfnum, allt eftir umfjöllunarefni sagnanna. Meðal annarra höfundarnafna hennar eru Jean Plaidy og Philippa Carr. Verk hennar hafa unnið til verðlauna, verið þýdd á fjölda tungumála og hafa selst í yfir 50 milljón eintökum um allan heim.

Formato
EPUB
Protezione
Watermark
Data di pubblicazione
22 luglio 2022
Editore
Collezione
Numero di pagine
220
Lingua
Is
ePub ISBN
9788728037072
PDF ISBN
9788728038086
EPUB
EPUB accessibility

Funzionalità di accessibilità

  • Sommario navigabile
sottoscrivi

Chi siamo

A proposito di De Marque Lavori Contattaci Condizioni di utilizzo Politica sulla riservatezza Feedbooks.com is operated by the Diffusion Champlain SASU company